Karen
29.09.2006 16:26:30 / karenaskr

Karen er komin aftur, næstum

Hei, ég kann enn lykilorðið mitt inná síðuna... golden... ég gæti núna t.d. byrjað að blogga á fullu og verið geðveikt sniðug og skemmtileg.

Jáhá, það gæti ég...

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 20:03:25 / karenaskr

Búið

Ég er núna hætt með þessa bloggsíðu því mér finnst þetta ekki lengur gaman. Ég held að það sé líka bara skemmtilegra að hætta núna alltíeinu í staðinn fyrir að láta hana bara fjara út.

Bless bless ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 15:28:41 / karenaskr

Fúríuferðin

Ég er ennþá að jafna mig eftir Fúríuferðina...
Þetta var svona eins og ég vildi hafa þetta, gera sig svona smá að fífli, láta eins og asni, drekka örlítið of mikið og dansa eins og vitleysingur.
Ég held að ég hef aldrei skemmt mér jafn mikið á dansgólfinu. Það var nóg pláss og maður bara einhvurnveginn skautaði um gólfið, leit áræðinlega hálf húmórískt út en vá hvað það var gaman. Húrra, ég veit eiginlega ekkert hvað ég get sagt meira um þessa ferð.  Jú svo náttúrulega varð maður vitni að nánum samþjöppunum í hópnum. Það var bara kósý. Svo óheflað andrúmsloft bara. :)

Neighbours í gangi hérna, Boyd er í ruglinu og núna eru allir bara grátandi.

Þeim þarma veitti ekki af einni Fúríuferð, svei minn


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 12:57:40 / karenaskr

Það eru hommar í Versló

Morfís í gær. Kvennó á móti Versló. Kvennó var betra, miklu betra, en tapaði samt. Fúlt.

En vúhúú ég er að fara í Fúríuferð og hlakka til.

Bless í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 23:22:04 / karenaskr

Afleiðingar sumarsins 2005

Stundum fæ ég einkennilega skemmtileg hrós, í dag fékk ég eitt sem hljómaði eitthvað í þá átt að það væri alltaf svo góða lykt af minni, ... nema! þegar ég væri andfúl.
Skemmtilegt nok ...
Ég var mjög sátt við bekkinn minn í bekkjarmyndatökunni í dag, þemað okkar, foreldraþema, var sko alveg að virka og í nokkrar mínútúr gerðummst við öll óléttir smábarnaeigendur. Þegar ég var að segja einni í skólanum frá þessu okkar var hún steinhissa að drengirnir hefðu samþykkt svona barnaþema eitthvað og sagði að sýnir bekkjarmenn hefðu aldrei tekið neitt svona þema í mál.
Svo strákarnir munu fá hlýjar hugsanir í dag og Gunnur líka fyrir að hafa haft mestu flykkisbumbu sem sögur fara af.

Fyrisögnin á blogginu er heiti bekkjarmyndarinnar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 23:02:27 / karenaskr

Karen færsluflytjari

Ég veit ekki hvort það sé sniðugt að vera að blogga, allavega ekki í mínu tilfelli. Ég var að lesa folk.is bloggin mín, sem eru ekki nema um eins árs gömul, og er ennþá með leifar að grænum bólum eftir lesturinn. Hvað er málið, eða hvað var málið? Hrikalega hallærislegt og hundleiðinlegt blogg. Samt fannst mér ég alveg kúl og sneddý þarna fyrir ári þegar ég var að pikka þetta. Ég reyndi aðeins að hugga mig þegar ég var að lesa folk.is með því segja að ég væri miklu flottari bloggari núna á þessari "blogcentral" síðu. Ég ákvað því að renna yfir nokkur nýblogg hérna, svona til að staðfesta það. Og viti menn, jahh, hvað get ég sagt. Þau eru ekki jafn skemmtileg og ég hélt.

Jahh, en hjúkket að þetta blogg er töff.


Því ég vil ekki hætta.

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 23:46:45 / karenaskr

Horsíðan mín

Lilja var veik í dag og í því tilefni smellti hún saman í nýtt útlit á síðu aftursætishnátnanna. Við hinar erum líka svona glimramdi ánægðar með þetta (þótt Guggu úrlit kom líka sterkt inn og var svakalega lekkert) og ég vil nota tælifærið og þakka Lilju fyrir að vera til, ekki bara út af nýju flottu útliti BSG síðunnar heldur líka fyrir að vera hipp og kúl.

Ég vildi líka vera flott og ákvað að breyta minni síðu. Það hefur greinilega ekki heppnast betur en það að ég á núna síðu í hor-lit, með horstrenglum einhverjum efst.
Gott mál, ég ætla að halda henni svona.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 11:38:12 / karenaskr

Akveg...

Ég sit í herbergi í kvennó sem er í stíl við síðuna. Með kaffivel við hendina, rómó ljósaperur og hjartapúðar. Obboslega kósý eitthvað. Ég ætla að fara að hafa það kósý með Guggu. Bæ

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 22:46:48 / karenaskr

djöfull

ég get hatað...

ógeðslegan krakka sem er vondur við litlu systur mína. Helvíti djöfull.
Ég er reið.

Ef börn eru vond frá leikskólaaldri hvurs lags manneskju hafa þau að geyma.

ég veit ég veit, þeim gæti liðið illa og þá er þetta allt voða dúlló.
en þau sem eru bara vond

helvítis krakkaógeð


ég samþykki að þetta er grunnhyggið blogg og allt það, ég bara...

helvítis

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 00:28:04 / karenaskr

Marion kerlingin

Jæja, þá eru hlutverkin komin á hreint. 
Haldiði að mín muni ekki bara fara í líki subbulegs alkakvendis sem blótar meira á nokkrum mínútum en ég sjálf hef hugsað alla ævi.
Jahh en þetta er mjög krefjandi hlutverk og ég væri að ljúga ef ég segði að ég kviði ekki fyrir því... núna er bara planið að fara á Nikkabar og fleiri svoleiðis kósý staði og spjalla við rónakerlingarnar og reyna að læra af þeim einhverja golden takta. Þetta verður fjör :)

Skrýtið hvað ein manneskja getur bjargað öllu og flutt fjöll með einu faðmlagi.

Svona er veröldin skrýtin. jiií minn

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 23:47:07 / karenaskr

Ég alveg hata þetta fyrirsagnakjaftæði...

Ég er bara heima núna, að enda við að horfa á Ice Age. Mjög skemmtilegt þar á ferð, allavegana mjög fyndið. Mjög.
Laugardagskvöldin hérna heima eru svo róleg, var búin að gleyma því.
Mjööög róleg.

Á mánudaginn verður skipað niður í hlutverk í leiklistinnni. Ég girnist hlutverk, þar er frekar lítið er hrikalega skemmtilegt.
Eftir minni heppni í lífinu fæ ég það líklegast ekki. En auðvitað tekur maður bara því sem maður fær og gerir það allra besta sem maður getur úr því... í heiminum...
Ekkert grenj á þessu heimilið. Ónei.

Í gær var fínt. Svolítið aleina stelpan einhverja hluta kvöldsins. En um tíma fjölgaði brjóstunum alveg um fjögur stykki. Það var ágætt. Ekki misskilja mig, eistun voru alveg skemmtileg.

Núna get ég gert hvað sem ég vil, allir vegir opnir. Ég ætla að horfa á Aladín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 19:58:08 / karenaskr

Feimin?

Ég held ég hafi í raun aldrei verið feimin eða mjög, mjög svo vandræðaleg í lífinu mínu.
Ég man reyndar bara eftir tveimur skiptum sem ég var feimin sem krakki. Eitt skiptið var þegar ég hitti nýju konu frænda míns í fyrsta skiptið, hún var svo rosalega mikil skvísa og alveg ennþá meiri töffari og ég var bara sex eða sjö ára. Þá faldi ég mig bara bak við mömmu þannig að það reddaðist.
Seinna skiptið var þegar ég var ný í Fellaskóla í öðrum bekk og það var verið að lesa upp í fyrsta skiptið. Ég man eftir smá feimni þá, aðallega vegna þess að allir hinir krakkarnir í bekknum gláptu svo helvíti stíft á mig. Já ætli ég hafi ekki líka verið vandræðaleg þá, svei minn þá. Bara helvíti mikið.
Svo síðan þá hefur feimni ekki mikið verið að kraulað á sér, allavegana ekki að því marki að ég muni eitthvað sérstaklega eftir því.
Samt núna hef ég verið að finna fyrir því að í vissum aðstæðum hef ég verið feimin, og mér finnst það svo ótrúlega skrýtið. Svoldið óþægilegt en líka smá fyndið. Kanski því ég hef ekki verið þannig áður.
Ég var til dæmis eiginlega bara ótrúlega feimin í fyrsta fjölskylduboðinu sem ég fór með Lalla í. Þetta var ferming systur hans og öll ættin var þarna og við vorum búin að vera saman í tæðlega tvo mánuði eða eitthvað.
Ég var sjúklega stressuð og vildi alls ekki gera mig að fífli, svona koma vel fyrir.
En það reddaðist líka eins og fyrra skiptið því ég faldi mig bara bak við Lalla súpergaur í það skiptið. Svo veit ég að þegar ég hitti Damien Rice og Amy mun ég verða feimin...

Okei, ég var bara í baði og fór að hugsa um þetta, hvað það er allt í lagi að vera feiminn og að fólk eigi alls ekki að lýta á það sem eitthvað neikvætt, frekar bara skemmtilegan persónukaraketara-stíl
Ja þetta kom sögunum kanski ekkert við...

Æ égt hætti bara núna


Munið þið eftir feimnum atvikum? deilið sögunniog ég mun borga ykkur fimm þúsund ef það er krassandi. Kanski að ég muni blogga um það sér blogg ef það er bitastætt og þá fáiði tíu þúsund kall. En ath. að þá þarf efnið að tengjast nauðgunum, blóði níðingum eða einhentum mönnum á einhvurn hátt, allir þurfa að vera nafngreindir og mynd skal fylgja.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 20:32:45 / karenaskr

Þessi er svona skársta bókin ... í heiminum

Fólk er farið ð tala um naflasleikingar og naflakusk í kommentum svo ég held að það þýði að nú sé kominn tími fyrir nýtt blogg.

Leiklistin er að skríða af stað, sem er náttúrulega bara mjög gaman. En svo fjandi stressandi líka. Ég held að þótt það séu ekkert allir til í að viðurkenna það þá segji ég það satt að fólkið er alveg á nálum þarna inni að reyna að sanna sig, vera góður til þess að fá skemmtilegt hlutverk. Allavegana finn ég alveg fyrir því. En það er nú alltaf bara gaman að hafa smá metnað, er það ekki?

Ég hlakka til.
Ég hlakka til árshátíðarinnar
... nefndarferð nr.2
... fúríuferðar
... útskriftarferðar
... frumsýningar
... vorsins
... Rymju

Þetta er að fara með mig.

Svona til frekari fræðslu þá á ég nýjan kjól.


Voðalega er allt gott núna, jiiminn.
Ég skal vera í fýlu í næsta bloggi.



» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 20:39:20 / karenaskr

...

Mikið rosalega er mín sátt við bleika litinn hérna, mér finnst hann alveg dúndur.

Ég svei minn hlakka bara til að byrja í skólanum. Svona er mín lífsins saga hlakka til að byrja og hlakka til að hætta.

Ég er að lesa bókina hennar Steinunnar Ólínu "Í fylgd með fullorðnum" og hingað til finn ég mig alveg gífurlega í bókinni... ég á rúmlega helminginn eftir svo ég veit ekki hvort hún fer að brjálast, aðalpersónan, eða eitthvað. Allavega hingað til erum við tvær (ég og sögupersónan) frekar líkar svona. Mér finnst mjög gaman að finna sjálfa mig í einhverju hvort sem það er í gegnum tónlist, ljóð, bækur eða aðrar manneskjur.

Það er bara eitthvað fútt við það.

» 17 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 00:06:51 / karenaskr

Gleðiskriftir


Vúhú nýtt ár.
Gleðilegt allt með það öll saman

Sérstaklega Lalli, aftursætishnáturnar mínar og Gabriella,Baldur og Katrín

Þið eruð mitt...
Takk fyrir gamla skemmtilega árið og hlakka til þess næsta, með ykkur



» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3